Tuesday, April 15, 2014

Sleek á Íslandi!

Loksins, loksins verða Sleek vörurnar fáanlegar á Íslandi! Sem eru ekki endilega góðar fréttir fyrir veskið mitt - en mjög góðar fyrir sálina mína! Vörurnar verða fáanlegar innan skamms á haustfjord.is . Mér skilst að allar vörurnar séu á undir 4000 kr og augnskuggapalletturnar með 12 augnskuggum koma til með að kosta 2390 og varalitirnir 1490. Ég hef prófað nokkrar vörur frá Sleek og ég eeelska þær! Frábært úrval, ótrúlega vandaðar vörur og fallegir litir. Hvet ykkur til að fylgjast með á facebook síðunni hennar Heiðdísar , Haustfjörð Makeup og skrá ykkur á póstlistann til að fá nýjustu fréttir.

Talandi um mega ódýrar en góðar snyrtivörur, þá keypti ég mér 4 augnskugga frá Make Up Geek. Var búin að vera mjög spennt að prófa og bíð nú eftir sendingunni sem fór af stað í dag. Keypti mér litina Peach Smoothie, Cocoa Bear, Cinderella og Creme Brulée. Ég er svona 98,7% viss um að ég muni kaupa mér fleiri liti. Mögulega alla..ef ég missi mig. Keypti bara svona "pans" til að setja inní nýju fínu tómu Mac pallettuna mína þar sem ég get loksins haft alla augnskuggana mína saman á einum stað. Eins og ein stór hamingjusöm fjölskylda. Mjög falleg fjölskylda. Á eftir a depot-a 4 Mac augnskugga, búin að kynna mér á youtube hvernig það er gert (svona..) - vonandi er það svona auðvelt.

Happy shopping!


Wednesday, April 9, 2014

Út fyrir þægindarammann


Þessi færsla er aðeins persónulegri og töluvert lengri en ég er vön að skrifa en það er nefnilega þannig að þegar maður fer út að hlaupa þá eru allskonar hugsanir sem þjóta um og ég ákvað að mínar ættu heima hér þar sem allir sem hafa áhuga á því geta lesið..

Um daginn var dagur sjúkraþjálfunar haldinn hátíðlegur. Þar voru saman komnir gamlir, nýir og verðandi sjúkraþjálfarar til að hlusta á aðra sjúkraþjálfara og fleira sniðugt fólk tala um allskonar sniðuga hluti. Einn af þeim fyrirlestrum sem mér fannst áhugaverðastur var fyrirlesturinn hans Sigga Ragga um hvað þarf til að ná árangri. Þar talaði hann um að til þess að ná árangri og til að bæta sig og verða framúrskarandi í því sem maður gerir þarf maður að setja sér markmið. Markmiðasetning er svo mikilvæg. Ég ætla ekki að fara nákvæmlega í þá sálma, þar sem þetta blogg gæti því orðið ca. 5 blaðsíðna ritgerð. Markmiðasetning er nefnilega svona 1/3 af öllu sem ég hef lært í skólanum þetta árið. Allavega þurfa þau að vera SMART (google it...). Maður þarf að hafa ástríðu fyrir því sem maður gerir, vera tilbúinn að leggja á sig þetta “auka” umfram hina sem eru að reyna að gera það sama og þú og síðast en ekki síst þarf maður að fara út fyrir þægindarammann sinn! Það er nefnilega svoleiðis sem maður bætir sig. Sama hvað það er sem maður vill gera.

Nú ætla ég ekkert að ljúga að ykkur – mér finnst drepleiðinlegt að fara út að hlaupa. Reyndar ætti þessi setning að vera í þátíð, því fyrir u.þ.b. ári síðan fannst mér það allra leiðinlegasta sem hægt var að gera. Ég skiiiildi ekki fólk sem hljóp fleiri tugi kílómetra sér til skemmtunar. Svo þykist ég alltaf ætla að byrja að hlaupa. Ég ætla ekki einu sinni að segja ykkur hversu oft ég hef haldið því fram að ég ætli að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu. Oft sko. En hversu oft hef ég hlaupið 10 km? Ekki nokkurn tímann! Svo hlunkaðist ég af og til út að hlaupa (skokka...ekki hlaupa) þegar sólin skein og lullaði þess á milli á brettinu í WC á milli þess sem ég dansaði zumba, lyfti lóðum, bjórdósum, búðarpokum og nammipokum. Svo til að gera langa sögu stutta missti ég nokkur kíló, hætti að reyna að hlaupa því mér fannst það leiðinlegt, fann mér hreyfingu sem ég elskaði og leið bara rosa vel. Svo byrjaði ég í BootCamp. Oft langar mig bara ekkert á æfingu, tilhugsunin um brennandi læri og brennandi lungu er oft ekkert kósí þegar maður liggur uppí sófa með teppi en VÁ hvað það er alltaf gaman þegar maður er mættur. Það er svo ótrúlega auðvelt að halda bara áfram að kúra. Það er líka svo ótrúlega auðvelt að horfa bara á einn Friends í viðbót. Mitt “innra samtal” (köruletipúkinn á vinstri og köruræktardurgurinn á hægri) hefur þróast síðasta árið úr því að vera sú sem horfir á 3 friends í viðbót í það að drullast upp úr sófanum og gera eitthvað.

Að byrja í BootCamp var stórt skref út fyrir minn þægindaramma. Samblanda af hlaupi (og ÚTIhlaupi guð hjálpi mér), upphífingum (dauði og djöfull), bjarnargöngu, hnúahnébeygjum, ketilbjöllum og allskonar vitleysu hefur ekki verið minn tebolli en it grows on you og verður svo asnalega skemmtilegt. Svo byrjaði ég að æfa byrjendablak hjá HK. Ég hef aldrei æft boltaíþróttir alla mína ævi og hef forðast þær eins og heitan eldinn hreinlega vegna þess að ég er glötuð í þeim. Ég var líka glötuð í blaki þegar ég byrjaði. Núna ná uppgjafirnar mínar næææstum því allaf yfir netið!

Og nú...til að tengja allt þetta bull við punktinn sem ég er að reyna að koma á framfæri hérna...þá er ég búin að fara tvisvar út að hlaupa í þessum mánuði. Fyrsta skiptið fór ég stuttan hring sem lengdist óvart því ég bara gat allt í einu hlaupið lengur. Næst fór ég sama hring á miklu betri tíma og betra tempoi. Allt í rétta átt. Bekkjarsystur mínar ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu og ég ætla með þeim 10 km. Jáb, I went there. Í þetta skiptið mun ég standa við það því að munurinn á þessu skipti og öllum hinum sem ég hef lofað sjálfri mér þessu er sú að ég veit að ég get það. Ég veit líka að nú er það ekki hausinn sem mun stoppa mig, því hann er á svo mun betri stað en hann hefur áður verið. Þegar maður setur sér markmið er svo mikilvægt að taka inn í myndina hindranir sem geta orðið á vegi manns á leiðinni hvernig maður ætlar að vera undirbúinn fyrir að yfirstíga þær. Mín helsta hindrun hafa verið svona hugsanir: “æj það er svo kalt”,  “vá það er örugglega að byrja að rigna” eða “ég fer kannski á morgun bara”. Nú hef ég fundið mína leið til að komast yfir þessar hindranir. “Hættu þessu væli og drullastu á æfingu, þú verður SVO glöð þegar þú ert búin!” er orðin mín leið til að komast yfir þær. Auðvitað er þetta ekkert svona einfalt og hentar ekki öllum. Ég hef verið heillengi að vinna í því að styrkja mig bæði líkamlega og ekki síst andlega og hver og einn verður að finna sína leið til að komast í gegnum hvaða hindranir það eru sem halda aftur af þeim á leiðinni að sínu markmiði. Hvort sem markmiðið er að fara út að hlaupa, ekki borða nammi í viku, hækka meðaleinkunnina sína eða bara að líða vel í dag.

Þessi færsla átti ekkert að vera svona dramatísk..ég hef bara alltaf verið voða dramatísk – foreldrar mínir geta vottað það. Mér fannst bara svo merkilegt að ég, sem hef ekki hlunkast meira en lítinn hring í hverfinu mínu um hásumar hafi tekið meðvitaða ákvörðun um að fara út að hlaupa í myrkri og rigningu og í alvörunni fundist það skemmtilegt! Pínulítið hænuskref í átt að 10 kílómetrunum, en svo lengi sem það er í rétta átt þá er ég glöð! Litlu hlutirnir gleðja mann mest

Takk fyrir að lesa bullið í mér, þið sem entust alla leið hingað! 
Nú læt ég sennilega ekki í mér heyra fyrr en einhverntímann í næstu viku því nú eru verkleg próf og þá er lögheimili mitt í Stapa, HÍ og þar er enginn tími fyrir blogg eða snyrtidót

Góðar stundir
-Kara