Í alvöru. Fyrir utan örbylgjunúðlur. Það liðu ca 30 mín frá því að ég byrjaði að elda og þar til maturinn var kominn á borðið. Ég er nýflutt og ísskápurinn er smátt og smátt að fyllast, en ég kann alls ekki að elda fyrir 2, svo ég elda bara fyrir svona 4-6..og á svo bara afganga í aðra máltíð eða nesti:)
Þegar ég elda er ég ekkert mikið fyrir að fylgja uppskriftum, hendi bara einhverju saman og þetta til dæmis kom mjög vel út! Ef þið eruð í tímaþröng þá er þetta ansi þægilegur og fljótlegur kvöldmatur:)
1 pakki af nautahakki
2-3 stórar gulrætur
1/2 sæt kartafla
1/2 brokkolíhaus
1 dós gular baunir
nokkrir sveppir
dass af pasta (ég notaði lífrænar spelt skrúfur frá Sollu..þær voru nefnilega á tilboði)
1 krukka salsa sósa
1 lítil dolla af rjómaosti
Allt skorið í bita, hakkið steikist á einni pönnu á meðan pastað sýður í öðrum. Smá olía í stóran pott og kartöflurnar, gulræturnar, brokkolíið og sveppirnir sett ofan í eitt af öðru. Svo er hakkinu og pastanu blandað við grænmetið og sósunni og rjómaostinum blandað við allt saman. Allt í eldfast mót, rifinn ostur yfir og inn í ofn þar til osturinn er bráðnaður.
Yuuum! (Var svo glorsoltin að ég gleymdi að taka mynd af góðgætinu áður en ég reif matinn í mig...enda býður þessi réttur ekki beint uppá glæsilega framsetningu, svolítið gums bara.)
Verði ykkur að góðu!
-Kara
Thursday, September 19, 2013
Saturday, September 7, 2013
Nýtt uppáhalds
Ég er búin að vera ansi löt við blogg í sumar - en hinsvegar hef ég verið ansi dugleg að versla snyrtivörur, svo að ég býst við að það verði nóg af vöruumfjöllunarfærslum næstu daga. Nú er skólinn kominn á fullt og veðrið ógeðslegt að vanda og þá er best að sitja bara heima að læra..og blogga. Ætla líka að reyna að taka upp fleiri video, því mér finnst sjálfri svo gaman að horfa á svona video og vona að einhverjar ykkar geti kannski fengið innblástur eða lært eitthvað af videounum :)
En að aðalástæðu þessarar færslu : ég fjárfesti loksins í Nars Sheer Glow farðanum sem mér finnst aaaaaallir búnir að vera að tala um - og ekki að ástæðulausu greinilega. Ég hef aldrei orðið svona hrifin af farða við fyrstu sýn. Áferðin er ótúlega falleg og "dewy", ótrúlega auðvelt að skella á sig með höndunum í flýti, eða dunda sér við það með bursta. Hægt að hafa frekar létt rétt til að jafna út húðlitinn eða setja aðra umferð til að hylja betur. Áferðin verður svo náttúruleg og frískleg og mjög auðvelt að blanda og vinna inn í húðina. Ég sé smá eftir því að hafa ekki keypt líka ljósari lit fyrir veturinn og helst bara tvö stk af hvoru.
Ég hef líka heyrt að þetta meik sé jafnvinsælt hjá þeim sem eru með frekar feita húð og þeim sem eru með mjög þurra húð.
Eini gallinn við þetta annars snilldar meik er sá að það er engin pumpa svo maður þarf að hella farðanum úr til að nota hann. Sem mér finnst hrikalegt því að ég er hrædd um að það sé þá erfitt að ná farðanum úr þegar lítið er eftir.
Ef þið eruð á leið til útlanda á næstunni eða viljið panta á netinu þá er þetta eitthvað sem ég mundi hiklaust mæla með að þið prófið :)
Sunday, August 18, 2013
5 varalitir
Það er aldrei hægt að eiga nóg af varalitum - það vita allar konur. En ef ég mætti bara eiga 5 varaliti/gloss myndi ég velja þessa:
Mac - Hue
Hinn fullkomni nude bleiki litur. Hann er því miður ekki ennþá kominn í safnið EN hann er næstur á innkaupalistanum
Mac - Russian Red
Hinn fullkomni rauði varalitur að mínu mati. Blátóna litur svo að tennurnar virðast ekki gular eins og þær gera oft með rauðum varalit. Liturinn er mattur og helst því mjög vel og lengi á vörunum.
Mac - Rebel
Fallegur fjólubleikur litur sem hægt er að byggja upp frá því að vera skærbleikur í það að vera dökkur haust/vetrarlitur.
Mac - Show Orchid
Svo ég haldi áfram með Mac varalitina..þessi litur er sennilega ekki fyrir alla, en ef þú vilt að tekið sé eftir þér..þá er þetta liturinn! Hann er einnig á innkaupalistanum mínum!
Maybelline - Midnight Plum
Uppáhalds varaliturinn minn. Ever. En því miður þá týndi ég honum og er alltaf á leiðinni að kaupa nýjan. Hann er svo fallega fjólublár og fullkominn fyrir haustið sem nálgast óhugnalega hratt!
Ég veit ég sagði 5..en ég verð að bæta við einu glossi sem ég keypti mér loksins eftir að vera búin að ætla mér það leeeengi lengi..það er Beige frá NYX. Ótrúlega fallegur bleikur litur. Tanya Burr Youtube skvísa er búin að tala um þetta endalaust og ég varð að kaupa það! Sé ekki eftir því :)
----------------------------------------------------------------------------
-kara :)
Sunday, July 28, 2013
Makeup helgarinnar
Nóg af tækifærum til að klæða sig upp og gleðjast um helgina í sólinni :)
Fór á Kopar með fjölskyldunni á fimmtudagskvöldið og notaði Sleek Showstoppers pallettuna til að gera grænt smokey með svörtum dramatískum eyeliner. Á vörunum er ég svo með Russian Red varalitinn frá Mac.
Fór á Kopar með fjölskyldunni á fimmtudagskvöldið og notaði Sleek Showstoppers pallettuna til að gera grænt smokey með svörtum dramatískum eyeliner. Á vörunum er ég svo með Russian Red varalitinn frá Mac.
Í gær notaði ég svo svartan augnskugga til að gera smá smudged eyeliner línu og setti svo Little Black Bow gel eyeliner frá Mac yfir til að fá smá silfur-glans í línuna. Varalturinn er Pink Punch frá Maybelline.
Vona að þið hafið notið helgarinnar í sólinni!
-kara:)
Tuesday, July 23, 2013
Auðveld hversdagsförðun
Á sumrin finnst mér gott að nota léttan farða og eins lítið af snyrtivörum og hægt er. Ég keypti mér nýlega nýtt BB cream, Nude Magique BB Cream frá L'Oreal. Það er með svokölluðum smart pigment capsules, en kremið er hvítt á litinn þegar það kemur úr túbunni en aðlagast svo húðlitnum þegar það kemst í snertingu við húðina. Mér finnst L'Oreal kremið betra en Maybelline BB kremið að því leiti að áferðin er náttúrulegri. Eini gallinn finnst mér að light er örugglega of ljóst fyrir mig og ég rétt kemst upp með medium núna að sumri til. Annars er hægt að gera það aðeins meira svona 'dewy' með því að setja það á beint eftir að rakakrem er sett á, annars er ekki nauðsynlegt að setja rakakem undir þar sem kremið sjálft gefur góðan raka.
Jæja nóg um það - hér er mín sumar-hversdagsförðun í nokkrum skrefum:
Freknufés með enga málningu og engar augabrúnir (þarf að fara að lita þær en nenni því aldrei)
Hérna er L'Oreal Nude Magique BB cream komið á (og ég augljóslega virkilega ánægð með það hahah). Ég ber það á mig með fingrunum bara - langfljótlegast!
Skellti augabrúnum á mig. Notaði augabrúnakittið mitt frá Sleek og Mac 266 bursta
Maskari - Maybelline Illegal Length, hann er í miklu uppáhaldi hjá mér
Svo finishing touch, smá kinnalitur, Rose Gold frá Sleek og sólarpúður frá Make Up Store
Reyndar finnst mér annar galli á þessu kremi að það 'grípur' sólarpúðrið eiginlega of vel og litlu gull-agnirnar verða alltof shiny, allavega í sólarljósi. Kannski betra að setja smá púður (helst blothing powder) yfir kremið áður...gott að vera vitur eftirá!
Það eru til fleiri vörur í Nude Magique línunni og hér getiði séð myndband frá Trendnet förðunarsnillingnum Ernu Hrund þar sem hún notar kremið, hyljarann og kinnalitinn
Ætla að fjárfesta í restinni af línunni fljótlega - hlakka til!
-kara:)
Subscribe to:
Posts (Atom)



















