Saturday, February 8, 2014

Trend: appelsínugulur varalitur

Lisa Eldridge, förðunarfræðingur, setti inn myndband fyrr í vikunni þar sem hún talaði um eitt af helstu trendum fyrir vor/sumar förðunina en það er appelsínugulur varalitur. Hér getið þið séð myndbandið. Á þessum fallega, sólríka degi er tilvalið að draga fram svona sumarlega liti og því leitaði ég í safninu mínu og fann þrjá varaliti sem ég mun hafa uppi við með hækkandi sól. Þeir eru allir mjög ódýrir og góðir.


Þessi er úr Body Shop og er nr. 66. Maður þarf að fara nokkrar umferðir til að ná litnum eins sterkum og á myndinni. Hann er ótrúlega mjúkur og áferðin glansandi og falleg. Þessi er tilvalinn fyrir þá sem vilja ekki vera með alltof áberandi appelsínugulan lit en samt prófa sig áfram með þetta fína trend.


Þessi er úr Apocalips línunni frá Rimmel en það eru ótrúlega litsterkir varalitir/gloss. Þetta er liturinn Luna. Fæst t.d. á asos.com


Þessi er eiginlega alveg neon appelsínugulur, ég fékk hann með Sleek sendingu fyrir svolitlu síðan og hef hreinlega ekki þorað að nota hann því mér fannst hann svo áberandi. Hann heitir Tangerine Scream. Núna finnst mér hann samt mjög flottur og kem örugglega til með að nota hann í sumar. Væri líka flott að blanda honum saman við  einhvern rauðan til að gera hann aðeins minna áberandi eða minna appelsínugulan.

Góða helgi þið öll! 

-Kara





No comments:

Post a Comment